Top Module Empty
Main Menu
Home
Myndir
Nýtt Spjall
Login Form





Lost Password?
Veldu útlit








 
Syndicate
powered_by.png, 1 kB
Árshátíđarţögnin
Written by Vefarinn mikli   
Monday, 31 March 2008

Oft hefur það einkennt samkundur Kiddamanna að þögnin sem á eftir fylgir verður mælikvarði á það hversu vel til tókst. Virðist sem að hin algera þögn sem ríkt hefur síðan á árshátið sé svo mikil að það hlýtur að hafa verið fukkin mergjað.

Fréttir herma að fólk hafi flúið heimili sín af holtinu af ótta við að heimsendir væri í nánd svo mikið var karpað á aðalfundi Kiddamanna. En af miklu karpi koma nú stundum góðar niðurstöður og af þögninni að dæma eru allir gríðarlega sáttir við þær niðurstöður.

Hinsvegar verður að segjast að loforð þess efnis að upplýsingar um næsta aðalmót myndu koma á næstu dögum hafa ekki verið efnd. Því kallar vefurinn eftir því að fá dagskránna til sín sem allra fyrst svo hægt sé að hefja stúteringar um það hver þykir sigurstranglegastur á hinum ýmsu sviðum golfíþróttarinnar.

 Vefarinn kveður að sinni

 
Spennandi tímar !
Written by Vefurinn   
Monday, 28 January 2008
Gríðarlega spennandi tímar eru nú framundan hjá Golfklúbbnum Kidda. Þynnkan síðan í Lippstatd er loks að renna af mönnum og risinn því farinn að rumska. 

Helstu fréttir af félagsmönnum nú í upphafi þorra eru eftirfarandi: Brot af því helsta:

Jenni er búinn að gefast upp á öllu þessu helv harki á þessu djöfulsins skeri og er farinn af landi brott. Hann fór þó ekki langt og Danmark varð fyrir valinu. Er búinn að vera í kennslu í allann vetur hjá Úlfari Jóns og kveðst koma þríefldur til leiks í vor ! 
Vefurinn spáir enn einu vonbrigða tímabilinu hjá Jennsanum !

Óli er búinn að vera í mánuð í Argentínu útur sósaður og rauðvínleginn ! Verður gaman að sjá kallinn á klakanum á nýjan leik nú í byrjun febrúar ef lifrin heldur þetta út. Vefurinn spáir þessu 50/50 !

Tóti er búin að vera að passa uppá að nágrannar hans óla geti ekki sofið eina einustu helgi á árinu. Þetta er mjög mikilvægt fyrir Óla og því hefur Tóti þurft að standa vaktina meðan óli "hvílir" sig í suður ameríku. Heyrst hefur að Tóti hafi staðið sig með sóma eins og honum er von og vísa en hann var þó eitthvað að kvarta að ekki væri komið og skipt um á rúmunum, skipt um handklæði og þrifið. Óli hlýtur að kippa þessu í liðinn áður en hann fer í næstu heimreisu.

Annars bíða klúbbmeðlimir með öndina í hálsinum hvernig gangi að skipuleggja komandi árshátið. Þar sem Tóti fer þar fremstur í röð ásamt óla Argentínu og Gottlieb höfum við engar áhyggjur en heyrst hefur að hátíðin verði með breyttu sniði í ár, hvað svo sem það þýðir. 
Við vonum bara að þeir klúðri þessu ekki !

Adios Vefurinn !




 
Tilkynning frá Kammerkórnum
Written by Vefarinn   
Monday, 25 June 2007

Kammerkórinn harma þann leiða atburð að Jón Hákon Hjaltalín hafi ekki borgað aðgangseyrinn á dansiballið er haldið var í Úthlíð nú um síðastliðna helgi. Þetta gæti orðið til þess að ekki verður hægt að kaupa nýjar nótur fyrir organistan og verður kórinn sem slíkur og hlustendur hans að sætta sig við að engin ný lög verði á dagskránni í vetur.

Engu að síður þakkar kórinn öðrum meðlimum klúbbsins fyrir frábæra framkomu og fyrir að englaröddin Ólafur hafi ljáð hljómsveitinni rödd sína í eitt lag og hinum guðdómlega gjaldkera klúbbsins fyrir að styrkja starfið með höfðinglegri gjöf.

kær kveðja

Guðríður kórstjóri 

Last Updated ( Monday, 25 June 2007 )
 
Geysir hear we come!
Written by Geysiströlliđ   
Thursday, 21 June 2007

Þá fer brátt stundin að renna upp. Já aðalmót Golfklúbbsins Kidda verður senn að veruleika.

Formaðurinn hefur sett dagskrána inn á spjallið og lítur hún vægast sagt vel út. Má búast við miklu glensi og gamani alla helgina. Snorri er nú á fullu að æfa skemmtiatriði sem mun vera einsöngleikur byggður á kviðum Ódysseifs og mun brúðubíllinn verða honum innan handar.

Sem fyrr hefur komið fram er leikið á Golvellinum Geysi og þykir rétt að láta vita af því að mjög auðvelt er að týna boltum þarna og er mönnum því bent á að taka með sér nóg af boltum. Sá orðrómur er á kreiki að þeir selji á staðnum 10 bolta á 1000 kall  en það eru ekki staðfestar fregnir og því borgar sig að hafa vaðið fyrir neðan sig í þessum málum.

 Þorlákshöfn er það svo á morgun og lítur allt út fyrir að spilað verði Texas Scramble holukeppni án forgjafar og raðað í liðin eftir forgjafarstöðu manna. Áhyggjur hafa  komið upp að of langur tími fari í að meta hvaða bolta skal taka hverju sinni og því eru upp hugmyndir að lið fái hámark 1 mínútu til að ákveða hvorn boltan skuli taka. Brot við þessu eru 1 högg í víti. 

 Annars er það bara líf og fjör, allir klárir í slaginn og matarnefndin mun vera í essinu sínu þetta árið og bjóða uppá eðalvín og gnógt af koníak og einhverjum píkudrykkjum fyrir þá sem það vilja. 

 

 

 
Polls
Tekst Óla og Tóta ađ skipuleggja árshátíđ?